• Forsíða
  • Verkfæri
  • Kennslumyndbönd
  • Námstækni
  • Stafræn borgaravitund
  • Þristurinn
  Upplýsingatækni í Garðaskóla
  • Forsíða
  • Verkfæri
  • Kennslumyndbönd
  • Námstækni
  • Stafræn borgaravitund
  • Þristurinn
Til baka

Google Chromebook / Chromevafri

Picture

Read Aloud

Ókeypis viðbót (e. extension) í Chrome vafranum sem býður upp á íslensku talgervlana Karl og Dóru. Nauðsynlegt að setja upp í tengslum við Google reikning notanda (skrá sig inn).

​Hér má heyra dæmi um prófspurningar sem lesnar eru upp með talgervli og keyrðar út sem mp3 skrár.
Picture

Open Dyslexic

Ókeypis viðbót í Chrome sem býður upp á að breyta textanum í vafranum í Open Dyslexic stafagerðina. Athugið að myndir breytast ekki.

​Hér má heyra dæmi um prófspurningar sem lesnar eru upp með talgervli og keyrðar út sem mp3 skrár.
Picture

Google Translate

Google Translate viðbótin (e. extension) í Chromevafranum bíður upp á einfaldar þýðingu á stökum orðum eða setningum. Notandinn einfaldlega velur eða tvísmellir á það sem að þýða á síðunni og fær þá upp Google Translate merkið.

Í gegnum hefðbundnu vefútgáfuna er möguleiki á að skrifa, tala og hlaða inn skjölum til þýðinga (á sniðinu .doc, .docx, .odf, .pdf, .ppt, .pptx, .ps, .rtf, .txt, .xls eða .xlsx) .

Picture

Skrambi

Skrambi er íslenskt yfirlestrarforrit sem hýst er á vefnum og opnast því í hvaða netvafra sem er. Forritið er unnið í samstarfi við Árnastofnun. Notendur geta límt inn texta eða skrifað beint á síðuna til að nýta sér villuleitina. Einnig er hægt að líma inn texta og láta Ivona talgervilinn lesa upphátt svo hægt sé að staðsetja villur.

​Forritið er í þróun.
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Forsíða
  • Verkfæri
  • Kennslumyndbönd
  • Námstækni
  • Stafræn borgaravitund
  • Þristurinn