• Forsíða
  • Verkfæri
  • Kennslumyndbönd
  • Námstækni
  • Stafræn borgaravitund
  • Þristurinn
  Upplýsingatækni í Garðaskóla
  • Forsíða
  • Verkfæri
  • Kennslumyndbönd
  • Námstækni
  • Stafræn borgaravitund
  • Þristurinn

Garðaskóli sigurvegari í tækni- og hönnunarkeppninni First Lego League

15/11/2017

0 Comments

 
Lið Garðaskóla náði þeim frábæra árangri um helgina að vinna tækni- og hönnunarkeppnina First Lego League sem haldin var í Háskólabíó. Næst liggur leiðin til Osló í byrjun desember þar sem keppt verður við aðrar Norðurlandaþjóðir í forritun þjarka (róbóta) sem byggir á hönnun- og verkfræðihugsun. Auk þess munu þeir stilla upp kynningarbás á ensku um rannsóknarefnið vatn sem er þema keppninnar í ár. 

Nemendurnir eru hluti af valfaginu First Lego sem hefur einmitt aðsetur sitt í Hönnunarsmiðjunni. Tveir hópar eru keyrðir skólaárið 2017-2018, annar fyrir 9. bekk og hinn 10. bekk sem einblínir á keppnina.

Keppnin skiptist í fjóra meginhluta sem allir teljast til stiga: Forritun, rannsóknarverkefni, liðsheild og vélmennakeppni. Auk þess að bera sigur í heildarstigakeppninni vann lið Garðaskóla, FILIPPO BERIO, einnig sérstök verðlaun fyrir hönnun og forritun vélmennis. 

Um 200 keppendur frá 18 grunnskólum á Íslandi skráðu sig til leiks og stóð keppnin allan daginn. Markmiðið með keppninni er að efla færni og vekja áhuga ungs fólks á tækni og vísindum með því að leggja fyrir þau spennandi verkefni sem örva nýsköpun, byggja upp sjálfstraust og efla samskipta- og skipulagshæfni. Háskóli Íslands hefur staðið fyrir keppninni í rúman áratug en aðrir helstu styrktaraðilar eru Nýherji og Krumma.
0 Comments



Leave a Reply.

    Til baka
    Verkefni

    Hver og hvað?

    Hildur Rudolfsdóttir, kennsluráðgjafi í tölvu- og upplýsingatækni skrifar hér um starf í Hönnunarsmiðju Garðaskóla, Þristinum, sem tekin var í notkun haustið 2017

    Instagram

    Safnið

    May 2018
    April 2018
    March 2018
    January 2018
    November 2017
    September 2017
    August 2017

    Flokkar

    All

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Forsíða
  • Verkfæri
  • Kennslumyndbönd
  • Námstækni
  • Stafræn borgaravitund
  • Þristurinn