• Forsíða
  • Verkfæri
  • Kennslumyndbönd
  • Námstækni
  • Stafræn borgaravitund
  • Þristurinn
  Upplýsingatækni í Garðaskóla
  • Forsíða
  • Verkfæri
  • Kennslumyndbönd
  • Námstækni
  • Stafræn borgaravitund
  • Þristurinn
Til baka

PC borðtölvur og fartölvur

Picture

Hljóðbókasafn Íslands

Hljóðbóksafn Íslands heldur úti vefsíðu þar sem notendur geta streymt og/eða hlaðið niður hljóðbók á tölvu.  
​
Einungis þeir sem hafa vottaða greiningu upp á að geta ekki nýtt sér prentað letur geta fengið aðgang að hljóðbókum HBS. 
Picture

Ivona Reader / Mini-Reader

Ivona Reader forritið býður upp á íslensku talgervilsraddirnar Karl og Dóru. Notendur með aðgang að Hljóðbókasafni Íslands geta óskað eftir einkaaðgangi að forritinu á borð-/fartölvur án endurgjalds en aðrir geta keypt það í gegnum Blindrafélag Íslands.

Hér má heyra dæmi um prófspurningar sem lesnar eru upp með talgervli og keyrðar út sem mp3 skrár.
Picture

Púki

Púki villuleitarforritið er hægt að setja upp á borð-/fartölvum og nýtist til villuleitar í Microsoft Office pakkanum. 
Picture

Read Aloud

Ókeypis viðbót (e. extension) í Chrome vafranum sem býður upp á íslensku talgervlana Karl og Dóru. Nauðsynlegt að setja upp í tengslum við Google reikning notanda (skrá sig inn).

​Hér má heyra dæmi um prófspurningar sem lesnar eru upp með talgervli og keyrðar út sem mp3 skrár.
Picture

Open Dyslexic

Ókeypis viðbót (e. extension) í Chrome vafranum sem býður upp á að breyta textanum í vafranum í Open Dyslexic stafagerðina. Athugið að myndir breytast ekki. 

Til þess að ná í Open Dyslexic stafagerðina fyrir PC tölvur (virkar þá fyrir utan netvafrann) er nauðsynlegt að hlaða henni niður á tölvuna og setja hana upp.
Picture

Google Translate

Google Translate viðbótin (e. extension) í Chromevafranum bíður upp á einfaldar þýðingu á stökum orðum eða setningum. Notandinn einfaldlega velur eða tvísmellir á það sem að þýða á síðunni og fær þá upp Google Translate merkið. 

Í gegnum hefðbundnu vefútgáfuna er möguleiki á að skrifa, tala og hlaða inn skjölum til þýðinga (á sniðinu .doc, .docx, .odf, .pdf, .ppt, .pptx, .ps, .rtf, .txt, .xls eða .xlsx) .

Picture

Skrambi

Skrambi er íslenskt yfirlestrarforrit sem hýst er á vefnum og opnast því í hvaða netvafra sem er. Forritið er unnið í samstarfi við Árnastofnun. Notendur geta límt inn texta eða skrifað beint á síðuna til að nýta sér villuleitina. Einnig er hægt að líma inn texta og láta Ivona talgervilinn lesa upphátt svo hægt sé að staðsetja villur.

​Forritið er í þróun.
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Forsíða
  • Verkfæri
  • Kennslumyndbönd
  • Námstækni
  • Stafræn borgaravitund
  • Þristurinn