Þróun hugmynda
Núna skaltu taka þær upplýsingar sem þú hefur aflað í gegnum þarfagreiningu og hugmyndavinnu og þróa þína lausn á nýjum nemendaskáp.
Prófaðu þessar aðferðir
- Notaðu pappa til að búa til módel af skápnum þínum, hvort sem er í fullri stærð eða minni hlutföllum. Ekki einbeita þér að fullbúnu verki en taktu myndir af því, breyttu svo og prófaðu nýjar hugmyndir.
- Skissaðu upp eða nýttu Google SketchUp forritið til að búa til módel af hönnuninni þinni. Ekki einbeita þér að fullbúnu verki, vistaðu módelið, breyttu svo og prófaðu nýjar hugmyndir.